Erlent

Gift í 60 ár

Guðjón Helgason skrifar

Elísabet önnur Englandsdrottning og Filipus prins, eiginmaður hennar, fögnuðu 60 ára brúðkaupsafmæli í dag. Hjónin fögnuðu demantsbrúðkaupinu ásamt 2.000 gestum á sama stað og þau gengu í það heila 1947 - í Westminster Abbey.

Meðal gesta voru 5 fyrrverandi kirkjukórsfélagar sem sungu í brúðkaupinu fyrir 60 árum og 10 pör sem gengu í það heilaga sama dag.

Meðal þeirra sem lásu úr ritningum við athöfnina var Vilhjálmur prins, sonarsonur þeirra hjóna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×