Erlent

Pirraðir og þreyttir á verkföllum

Guðjón Helgason skrifar

Athafnalíf í Frakklandi var lamað í dag vegna verkfalla tug þúsunda opinberra starfsmanna. Almenningssamgöngur hafa verið skertar til muna síðustu vikuna. Sjúkrahús veita lágmarks umönnun og skólar eru lokaðir. Íslendingur sem býr í París segir borgarbúa þreytta og pirraða á ástandinu.

Ástæða þessara umfangsmiklu aðgerða og mótmæla í dag eru áform Nicolas Sarkozys, Frakklandsforseta, að skerða lífeyrisrétt opinberra starfsmanna og fækka þeim um rúmlega 20 þúsund með því að ráða ekki í þær stöður sem losna.

Almenningssamgöngur hafa að mestu legið niðri í viku. Nú bætast heilbrigðisstarfsmenn, kennarar, flugumferðastjórar og aðrir opinberir starfsmenn í hópinn - en þó aðeins í einn sólahring að öllu óbreyttu.

Ari Allansson, kvikmyndagerðarmaður býr í París. Hann segir verkfall starfmanna almenningssamgöngufyrirtækja hafa haft tilfinnanleg áhrif. Það hafi tekið óratíma að komast milli staða með lestum og strætisvögnum sem þó hafi gengið síðustu daga. Sjálfur noti hann litla skellinöðru til að komast milli staða og því laus við þann vanda. Það sem valdi honum hins vegar vandræðum sé það að umferðin sé mun þyngri á vegum nú en áður þegar almenningssamgöngur séu ótruflaðar.

Verkfall flugumferðastjóra hefur raskað flugumferð til og frá flugvöllunum tveimur í París og á flugvellinum í Marseilles. Ari segir vin sinn hafa verið á leið til Spánar og millilent í París í gær. Hann hafi ekki komist milli flugvalla vegna verkfallsins og misst af tengiflugi á hinum flugvellinum.

Kannanir benda til þess að Sarkozy njóti stuðnings meirihluta Frakka en það gæti breyst. Ari segir flesta Parísarbúa og aðra Frakka miklu fremur pirraða og þreytta á ástandinu en að þeir taki afstöðu í deilunni. Það kunni þó að breytast dragist verkföll á langinn og ljóst verði að það þurfi að grípa til aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×