Arenas frá keppni næstu þrjá mánuði 22. nóvember 2007 00:22 Gilbert Arenas verður frá keppni fram á næsta ár Nordic Photos / Getty Images
Skorarinn litríki Gilbert Arenas hjá Washington Wizards í NBA deildinni verður frá keppni næstu þrjá mánuðina eða svo eftir að hafa gengist undir hnéuppskurð í gær. Arenas meiddist á vinstra hné síðasta vor og fór í aðgerð í sumar, en það tók að bólgna upp í fyrstu leikjum tímabilsins. Arenas hafði misst af síðustu tveimur leikjum Washington og fór í myndatöku í gær sem leiddi í ljós að ekki var allt með felldu. "Ég byrjaði bara allt í einu að finna mikið til í hnénu og stífnaði allur upp. Það er fúlt að lenda í þessu núna af því ég hafði hlakkað til að ná mér á strik aftur, en það er ekki um annað að ræða en að byrja á fullu aftur í endurhæfingunni," sagði hinn eldhressi Arenas í gærkvöld. Hann var þriðji stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar í fyrra með rúm 28 stig að meðaltali í leik, en meiddist skömmu áður en úrslitakeppnin byrjaði og því var lið Washington án tveggja stjörnuleikmanna þegar úrslitakeppnin hófst. Liðið tapaði líka 4-0 fyrir Cleveland í fyrstu umferð. "Við unnum að vísu tvo síðustu leiki sem Arenas missti af hjá okkur en þeir voru nú ekki á móti liðum eins og Dallas og San Antonio. Það er okkur gríðarlegt áfall að missa Gilbert," sagði Eddie Jordan, þjálfari Washington. Nú er bara að bíða og sjá hvað Arenas hefur um málið að segja á blogginu sínu. Smelltu hér til að lesa bloggið hans á nba.com.
NBA Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira