Erlent

Sagður þurfa kraftaverk

Guðjón Helgason skrifar
Kevin Rudd, leiðtoga Verkamannaflokksins í Ástralíu, er spáð sigri í þingkosningunum á morgun og þar með forsætisráðherraembættinu.
Kevin Rudd, leiðtoga Verkamannaflokksins í Ástralíu, er spáð sigri í þingkosningunum á morgun og þar með forsætisráðherraembættinu. MYND/AP

John Howard - næst þaulsetnasti forsætisráðherra Ástralíu - berst nú fyrir pólitísku lífi sínu daginn fyrir þingkosningar í landinu. Því er spáð að Verkamannaflokkur Kevins Rudds fari með sigur af hólmi.

Fjölmiðlar í Ástralíu voru ekki að skafa utan af því í morgun - Howard sagður þurfa kraftaverk til að halda völdum. Hann og Frjálslyndi flokkur hans hafa verið við völd frá 1996. Aðeins einn hefur setið lengur - Robert Menzies 1949 til 1966. Verkamannaflokknum er spáð sigri leiðtoga hans - Kevin Rudd - forsætisráðherraembættinu.

Kosningabaráttan hefur þótt nokkuð litlaus - helst vegna þess hve Howard og Rudd eru líkir í fasi og stefnumálum. Svo langt gekk það að á dögunum voru þeir á kosningafundi í sömu borginni - mættu í sömu verslunarmiðstöðina sama daginn og kysstu sama barnið á kollinn til að veiða atkvæði.

Það sem helst hefur skaðað Howard í baráttuni síðustu vikuna er falsaður bæklingur sem flokksbræður hans gáfu út í kjördæmi þar sem mjótt er á munum. Í honum þakka tilbúin samtök múslima Verkamannaflokknum fyrir stuðning eftir hryðjuverkaárásirnar á Balí í Indónesíu 2002. Þar týndu fjölmargir ástralskir ferðmenn lífi. Þetta átti að ala á kynþáttahatri og veikja Rudd. Howard hefur svarið málið af sér en Rudd gripið það á lofti og boðar breytingar.

Rudd segist skilja það að margir kjósendur hafi ekki kosið Verkamannaflokkin fyrr, þeir hugsi nú um það. Aðrir hafi ekki kosið flokkinn í lengri tíma. Við þetta fólk vilji hann segja að ef hann nái kjöri verði hann forsætisráðherra allrar þjóðarinnar.

Howard varar hins vegar við breytingum. Ef kjósendur séu þeirrar skoðunar að landið sé í grunninn á leið í rétta átt séu engin rök fyrir því að breyta til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×