Erlent

Rafstuð fyrir hraðakstur

Guðjón Helgason skrifar
MYND/CBS - ENEX

Það er heitt undir löggæsluyfirvöldum í Utah í Bandaríkjunum eftir að lögreglumaður þar varð uppvís af því að nota rafstuðbyssu á ökumann sem tekinn var fyrir of hraðan akstur.

Myndband af atvikinu - sem varð í september síðastliðnum - var birt á netsíðunni YouTube í vikunni og hefur valdið fjaðrafoki.

Jared Massey var stöðvaður og ætlaði lögreglumaðurinn að sekta hann - Massey neitaði að skrifa undir skjal því tengt og greip þá lögreglumaðurinn til rafbyssunnar.

Massey hefur þegar lagt fram formlega kvörtun hjá lögreglunni í Utah og íhuga lögsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×