Innlent

Kannað verði hvort Seyðisfjörður sé álitlegur fyrir netþjónabú

MYND/Valgarður

Seyðisfjörður hefur bæst í þann hóp sveitarfélaga sem Fjárfestingarstofa vill vinna með til þess að kanna möguleika á uppsetningu netþjónabúa. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Það var Birkir Jón Jónssson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem gerði netþjónabú að umtalsefni. Fram hefur komið að Fjárfestingarstofa hafi sent tíu sveitarfélögum erindi þar sem óskað er eftir samstarfi um að kanna aðstæður í þeim fyrir rekstur og uppsetningu netþjónabúa.

Birkir spurði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hvort flutningsgeta raforku væri nægjanleg í þessum sveitarfélögum og á hvaða svæðum ónóg flutningsgeta hamlaði uppbyggingu netþjóna. Spurði hann ráðherra enn fremur um það við hvaða sveitarfélög ráðuneytið ætti samstarf um hugsanlega uppbyggingu netþjónabúa.

Össur Skarphéðinsson upplýsti að Fjárfestingarstofa væri nú að kanna hvort flutningsgeta raforkunnar væri nóg á umræddum stöðum en niðurstöður þeirrar könnunar lægju ekki fyrir. Benti Össur enn fremur á að netþjónabú væru misorkufrek og notuðu allt frá nokkrum megavöttum upp í hundrað megavött. Þá væri gerð krafa um mikið afhendingaröryggi á orku þannig að það þyrfti að hans mati í raun tvöfalt orkuflutningskerfi fyrir netþjónabúin.

Össur upplýsti enn fremur að sum þeirra tíu sveitarfélaga sem Fjárfestingarstofa hefði leitað eftir samstarfi við hefðu hafnað því. Hins vegar hefði verið bent á annað sveitarfélag en þessi tíu sem kæmi vel til greina varðandi uppbyggingu netþjónabúa. Það væri Seyðisfjörður. Þar væri verið að byggja upp virkjun sem gæti komið inn ef landsnetið gæfi sig. Enn fremur kæmi Farice-strengurinn, sem tengdi Ísland við útlönd, þar á land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×