Erlent

Misþyrmdu mígandi manni

Líklega leitar ungi maðurinn að einhverju svona frekar en húsvegg, þegar honum verður næst mál.
Líklega leitar ungi maðurinn að einhverju svona frekar en húsvegg, þegar honum verður næst mál.

Sænska lögreglan leitar nú tveggja ungra kvenna sem misþyrmdu ungum manni svo hrottalega í Lundi að það varð að flytja hann á sjúkraús.

Konurnar réðust á manninn þar sem hann var að hlýða kalli náttúrunnar síðastliðna nótt. Eins og á Íslandi er bannað í Svíþjóð að pissa á almannafæri.

Sjónarvottum leist svo illa á aðfarir kvennanna að þeir hringdu í lögregluna sem kom fljótlega á vettvang.

Þá voru þær horfnar en maðurinn lá eftir í götunni. Það fossblæddi úr honum og hann var í andnauð. Hann var því fluttur í skyndi með sjúkrabíl á Háskólasjúkrahúsið í Lundi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×