Sport

Bestu skotin í orðastríði Hatton og Mayweather

Ricky Hatton mundar byssurnar í hringnum í Las Vegas
Ricky Hatton mundar byssurnar í hringnum í Las Vegas NordicPhotos/GettyImages

Nú styttist óðum í hnefaleikabardaga ársins milli Ricky Hatton og Floyd Mayweather í Las Vegas. Í tilefni af því er ekki úr vegi að skoða bestu skotin sem gengið hafa þeirra á milli í aðdraganda bardagans aðfaranótt sunnudagsins.

Þessar yfirlýsingar komu frá köppunum á kynningarferðalagi þeirra fyrir bardagann og Eurosport tók saman skemmtilegustu pillurnar sem féllu af munni þeirra.

Mayweather: "Hef ég áhyggjur af því að mæta Ricky Hatton? Þessum litla dverg? Hann er í sjálfsblekkingu ef hann er að reyna að verða stjarna. Ég er ofur-ofurstjarna. Í Guðanna bænum."

Hatton: (Spurður um vörnina hjá Mayweather) "Við vitum öll að honum finnst gaman að hlaupa, þannig að ég réði til mín tvo sérstaka æfingafélaga. Carl Lewis og Forrest Gump."

Hatton: (Þegar þeir tveir stilltu sér upp fyrir myndatöku) "Þú ert þó ekki að fara að reyna að kyssa mig, Floyd?"

Mayweather: (Á blaðamannafundi) "Ég vildi óska að ég væri lokaður inni í fangelsi með þér. Þá myndi ég gera þig að tíkinni minni."

Hatton: (Á blaðamannafundi í Manchester) "Ég vil þakka ykkur sérstaklega fyrir að koma og það er gott að vera kominn aftur heim til fjölskyldunnar... (sneri sér að Mayweather) - Floyd, viltu hætta að klípa í rassinn á mér, hel***is öfugugginn þinn."

Hatton: (Á sama blaðamannafundi) "Ég hef saknað sex ára gamals sonar míns mikið á þessu ferðalagi en ég hef þó ekki saknað hans eins mikið og ætla mætti því ég er búinn að vera að þvælast um með öðrum sex ára hálfvita."

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×