Viðskipti erlent

Forstjóri Coka Cola stígur úr forstjórastólnum

Neville Isdell, forstjóri og stjórnarformaður bandaríska gosdrykkjarisans Coca Cola.
Neville Isdell, forstjóri og stjórnarformaður bandaríska gosdrykkjarisans Coca Cola. Mynd/AFP

Neville Isdell, forstjóri og stjórnarformaður bandaríska gosdrykkjarisans Coca Cola, ætlar að gefa forstjórastólinn eftir um mitt næsta ári og mun Muhtar Kent, næstráðandi hans, taka við starfinu. Isdell mun eftir sem áður vera stjórnarformaður fyrirtækisins næstu tvö árin.

Ekki er gefið upp um ástæðu þess að Isdell ætli að segja starfi sínu lausu. Hann er 64 ára og þykir hafa stýrt Kókskútunni vel inn á nýja alþjóðlega markaði, ekki síst til Kína. Nokkuð hefur hins vegar dregið úr sölu uppá síðkastið en neytendur hafa í auknum mæli kosið að svala þorsta sínum fremur með vatni á flöskum eða tei, að sögn breska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×