Handbolti

Stjarnan lagði Akureyri

Heimir Örn Árnason var markahæstur Stjörnumanna í dag
Heimir Örn Árnason var markahæstur Stjörnumanna í dag Mynd/Vilhelm

Tveir leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag og tveir í kvennalflokki.

Stjarnan vann nauman sigur á Akureyri í Mýrinni í Garðabæ 30-29 þar sem heimamenn tryggðu sér sigurinn með marki skömmu fyrir leikslok. Heimir Örn Árnason skoraði 9 mörk fyrir Stjörnumenn í leiknum.

Valsmenn rótburstuðu Eyjamenn 40-28 í Eyjum þar sem Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 12 mörk fyrir Val og Kristján Karlsson 8 en Sergey Trotsenko var með 13 mörk fyrir ÍBV.

Í kvennalfokki vann FH góðan sigur á Akureyri 24-20 þar sem Ragnhildur Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir FH og Lilja Þórisdóttir sömuleiðis 8 fyrir norðanliðið. Þá vann Grótta öruggan sigur á Fylki 30-21.

Nánari umfjöllun um leikina verður hér á Vísi snemma í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×