Innlent

Tuttugu og átta fá heiðurslaun listamanna

MYND/GVA

Gert er ráð fyrir að 28 listamenn hljóti heiðurslaun listamanna á næsta ári samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar við vinnslu fjárlaga næsta árs.

Gert er ráð fyrir að hver og einn sem þiggur launin fái 150 þúsund krónur á mánuði eða 25 þúsund krónum meira en heiðurslistamenn fengu í fyrra. Samtals fá listamennirnir hver og einn 1,8 milljón króna á árinu sem 200 þúsund krónum meira en í fyrra. Samtals nema launin því rúmum 50 milljónum króna.

Lagt er til að eftirtaldir aðilar hljóti heiðurslaun listamanna.

Atli Heimir Sveinsson

Ásgerður Búadóttir

Erró

Fríða Á. Sigurðardóttir

Guðbergur Bergsson

Guðmunda Elíasdóttir

Gunnar Eyjólfsson

Hannes Pétursson

Herdís Þorvaldsdóttir

Jóhann Hjálmarsson

Jón Nordal

Jón Sigurbjörnsson

Jón Þórarinsson

Jónas Ingimundarson

Jórunn Viðar

Kristbjörg Kjeld

Kristján Davíðsson

Magnús Pálsson

Matthías Johannessen

Megas

Róbert Arnfinnsson

Thor Vilhjálmsson

Vigdís Grímsdóttir

Vilborg Dagbjartsdóttir

Þorbjörg Höskuldsdóttir

Þorsteinn frá Hamri

Þráinn Bertelsson

Þuríður Pálsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×