Viðskipti erlent

Nýr stjóri í brúnni hjá Citigroup

Vikrum Pandit, nýráðinn forstjóri Citigroup.
Vikrum Pandit, nýráðinn forstjóri Citigroup. Mynd/AFP

Bandaríski bankinn Citigroup hefur fengið nýjan forstjóra. Sá heitir Vikrum Pandit og tekur við Charles Prince, sem tók poka sinn í nóvember eftir að bankinn greindi frá því að hann þyrfti að afskrifa heila 17 milljarða dala, jafnvirði rúmra eitt þúsund milljarða króna, úr bókum sínum vegna tapaðra útlána.

Breska ríkisútvarpið segir nokkra aðra hafa komið til greina. Þar á meðal Fred Godwin, bankastjóra Royal Bank of Scotland, og Josef Ackermann, forstjóra hins þýska Deutsche Bank.

Ráðningin er liður í talsverðri nýliðun í hópi stærstu banka Bandaríkjanna eftir stóran skell í tengslum við lausafjárkrísuna sem riðið hefur yfir fjármálaheiminn að undanförnu en fjöldi bankastjóra og æðstu stjórnendum hefur verið sparkað úr stólnum af þeim sökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×