Körfubolti

Snæfell steinlá í Seljaskóla

Fannar Ólafsson og félagar í KR lögðu Tindastól í kvöld
Fannar Ólafsson og félagar í KR lögðu Tindastól í kvöld Mynd/Vilhelm

Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld. ÍR burstaði Snæfell 102-77 í Seljaskóla, Keflavík vann Skallagrím 92-80, KR lagði Tindastól 97-91 og Njarðvík lagði Fjölni suður með sjó 87-75.

Sveinbjörn Claesen var stigahæstur hjá ÍR með 21 stig, Hreggviður Magnússon skoraði 19 stig,  Ómar Sævarsson 18 (9 fráköst) og Ólafur Sigurðsson skoraði 12 stig.

Justin Shouse skoraði 20 stig, gaf 10 stoðsendingar og hirti 7 fráköst fyrir Snæfell, ANders Katholm skoraði 11 stig og Hlynur Bæringsson 10 stig og hirti 7 fráköst. 

Keflavík er á toppnum með 20 stig, KR er í öðru með 16 og Grindavík er í þriðja sætinu með 14 stig en á leik til góða gegn Þór annað kvöld. Njarðvík er svo í fjórða sætinu með 12 stig, Skallagrímur með 10 í fimmta og ÍR, Þór og Snæfell hafa 8 stig en Þórsarar eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×