Körfubolti

Stjarnan vann öruggan sigur á Hamri

Einn leikur fór fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Stjarnan lagði Hamar í Garðabæ 83-63 og fer því í 9. sæti deildarinnar. Hamar er enn á botninum með aðeins tvö stig úr tíu leikjum.

Dimitar Karadzovski var stigahæstur í liði heimamanna með 24 stig, Calvin Roland skoraði 18 stig og hirti 14 fráköst og Fannar Helgason skoraði 15 stig og hirti 9 fráköst.

Í liði Hamars voru þeir George Byrd (16 stig, 10 fráköst) og Roni Leimu (16 stig) atkvæðamestir, auk þess sem Bojan Bojovic skoraði 10 stig og hirti 9 fráköst. Lárus Jónsson gaf 10 stoðsendingar.

Leik Þórs og Grindavíkur sem fara átti fram í kvöld var frestað vegna veðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×