Viðskipti erlent

Mikið tap hjá Morgan Stanley

John Mack, forstjóri bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley, brosir ekki í kampinn þessa dagana en bankinn hefur afskrifað háar fjárhæðir vegna bandaríska fasteignalána.
John Mack, forstjóri bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley, brosir ekki í kampinn þessa dagana en bankinn hefur afskrifað háar fjárhæðir vegna bandaríska fasteignalána. Mynd/AFP

Morgan Stanley, næststærsti fjárfestingabanki Bandaríkjanna, skilaði 5,8 milljarða dala, jafnvirði 356 milljarða króna, tapi á fjórða ársfjórðungi.  Þetta er talsvert verri afkoma en búist var við. Til samanburðar hagnaðist bankinn um 2,28 milljarða dala á sama tíma í fyrra.

Tapið er að langmestu leyti tilkomið vegna afskrifta fasteignalána upp á 9,4 milljarða dala sem kemur til viðbótar við 1,2 milljarða dala afskriftir á síðasta fjórðungi.

Bankinn hefur varið sig að nokkru leyti gegn þessari slæmu útreið með fjármögnun upp á fimm milljarða dala frá kínverskum fjárfestingasjóði, sem er í eigu stjórnvalda þar í landi.

John Mack, forstjóri Morgan Stanley, segir afkomuna slæma og hefur ákveðið að fella niður bónusgreiðslur til sín á árinu.

Kollegar hans hjá öðrum bönkum, þeir Stan O'Neil, fyrrum forstjóri Merrill Lynch, og Charles Prince, fyrrum forstjóri Citigroup, tóku báðir poka sína eftir afskriftir hjá bönkunum í síðasta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×