Innlent

Ferðamennirnir bíða enn björgunnar.

Björgunnarsveitarmenn voru kallaðir út frá Borgarnesi um klukkan 21:30 í kvöld til þess að ná í fjóra erlenda ferðamenn sem voru á gangi upp á Langjökli. Ferðaþjónustuaðili sem átti að sækja mennina sat fastur og komst því ekki til móts við þá.

Að sögn vakthafandi lögreglu á Borgarnesi væsir ekki um mennina og eru þeir komnir inn í skálann Jaka ofan við Húsafell en björgunarsveit gengur erfiðlega að komast á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×