Tónlist

Hýrnar um hólma og sker

Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur fagnar vori.
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur fagnar vori.

Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur heldur tvenna vortónleika í kvöld og annað kvöld í Bústaðakirkju. Hefjast tónleikarnir bæði kvöldin kl. 20. Tveir karlar slæðast með í tónleikahald kórsins: Tómas R. Einarsson bassaleikari hefur fylgt kórnum um árabil og styrkt þær með áslætti sínum og í kvöld verður Bergþór Pálsson söngvari gestur við flutning á dagskrá sem er sótt hingað og þangað.

Lög eftir Inga T. Lárusson sem þær hafa æft upp vegna heimsóknar sinnar austur á land síðar í þessum mánuði, en þaðan var Ingi ættaður, slagara frá stríðsárunum eru þær líka með á efnisskránni og svo syngja stelpurnar slagara frá unglingsárum sínum: dægurlög blómatímans. Kórstjóri er Jóhanna Þórhallsdóttir og undirleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari.

Léttsveitin er 120 kvenna kór og hafa þær sungið víða sér og öðrum til skemmtunar og yndisauka. Mörgum er í fersku minni heimildarmynd sem sýnd var í sjónvarpi fyrir fáum mánuðum frá ferðalagi kórsins um Evrópu en þær hafa víða farið: Bolungarvík, Dublin, Havana, Kaupmannahöfn, Feneyjar og Vestmannaeyjar. Það er óhætt að lofa hressum söng með sveiflu þar sem Jóhanna og hennar kátu konur – og karlar – eru á ferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.