Bíó og sjónvarp

Syndlaus Banderas

Banderas er svekktur yfir því að fá ekki hlutverk í nýju Sin City-myndinni.
Banderas er svekktur yfir því að fá ekki hlutverk í nýju Sin City-myndinni.

Antonio Banderas er svekktur yfir því að fá ekki hlutverk í næstu Sin City-mynd en hann hafði gert sér vonir um að blása nýju lífi í feril sinn eftir frekar mögur ár með þátttöku í henni.

Robert Rodrigues leggur nú drög að framhaldsmynd eftir að fyrsta myndin sem byggð var á bók Franks Miller sló í gegn. Hann hefur hins vegar ekki hringt í góðvin sinn Antonio.

Banderas og Rodrigues hafa gert saman sex myndir og heldur spænska sjarmatröllið enn í vonina um að leikstjórinn hringi í hann. „Þetta er alltaf svona. Hann hringir í mig kvöldið áður en tökur hefjast og spyr hvort við eigum ekki að gera saman mynd,“ sagði Banderas sem bíður væntanlega við símann ef Rodrigues skyldi nú slá á þráðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×