Erlent

Bíll frumsýndur í tölvuleik

Toyota frumsýndi í dag tvær útgáfur af Scion bifreið þeirra. Það merkilega er að fréttamannafundirnir og kynningarnar voru haldnar í tveimur heimum samtímis. Annars vegar í raunveruleikanum og hins vegar í tilbúnum veruleikaheimi sem kallast „Annað Líf“ eða „Second Life“ á frummálinu.

Í tölvuheiminum mun fólk geta keypt sér Toyota Scion og rúntað um á honum. Með þessu uppátæki sínu er Toyota að reyna að skapa sér velvild spilara en alls 1,2 milljónir manna eiga sér persónu í leiknum. Hægt verður að uppfæra bílinn og breyta honum eftir óskum hvers og eins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×