Heilsa

Rautt kjöt orsök brjóstakrabbameins

Breskir sérfræðingar mæla með því að fólk miði daglega neyslu á rauðu kjöti við 85 grömm.
Breskir sérfræðingar mæla með því að fólk miði daglega neyslu á rauðu kjöti við 85 grömm.

Tengsl eru talin vera á milli neyslu unnins rauðs kjöts og brjóstakrabbameins.

Konur sem borða mikið kjöt, einkum og sér í lagi rautt eða unnið kjöt, eru líklegri til að fá brjóstakrabbamein, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar breskrar könnunar.

Sérfræðingar við Háskólann í Leeds fylgdust með matarvenjum 35.372 kvenna á aldrinum 35 til 69 ára í átta ár. Rannsóknin leiddi í ljós að konur sem borðuðu kjöt í mestu magni voru mun líklegri en grænmetisætur til að fá brjóstakrabbamein fyrir eða eftir tíðarhvörf.

Mesta áhættan á brjóstakrabbameini var í hópi kvenna eftir tíðahvörf og virtist rautt og unnið kjöt ein helsta orsökin að mati rannsakenda. Konur sem borðuðu rautt kjöt voru 56 prósentum líklegri til að fá brjóstakrabbamein en þær sem slepptu því. Þær sem neyttu rauðs kjöts í mestu magni voru 64 prósentum líklegri til að fá brjóstakrabba en hinar.

Tengslin á milli kjötneyslu og brjóstakrabbameins reyndust ekki eins sterk í hópi kvenna fyrir tíðahvörf. Engu að síður voru konurnar tuttugu prósentum líklegri en grænmetisætur til að fá brjóstakrabba.

Óljóst er hvaða ástæður kunna að vera fyrir þessum tengslum. Getgátur eru uppi um að mettuð fita eigi hlut að máli.

Frá þessu er greint í The British Journal of Cancer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.