Notuðu 300 loftkúta við reykköfun í gær 19. apríl 2007 12:18
Slökkviliðsmenn notuðu um 300 loftkúta við reykköfun í brunanum í miðbæ í gær, en það jafngildir loftnotkun í 10 og hálfan sólarhring. Þetta sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, í samtali við Stöð 2 nú í hádeginu. Hreinsunarstarf stendur nú yfir á staðnum þar sem Austurstræti 22 brann til kaldra kola.Slökkviliðsmenn börðust við eldinn frá klukkan 14 til 21 þegar það tókst að ráða niðurlögum hans. Jón Viðar er mjög ánægður með störf sinna manna og segir þá hafa gert það sem hægt var að gera í stöðunni. Hann bendir enn fremur á að á meðan á slökkvistarfi stóð hafi slökkviliðið notið aðstoðar frá Brunavörnum Suðurnesja sem fóru í um 40 sjúkraflutninga í gær.Hann segir samstarf slökkviliðs við lögreglu, Gámaþjónustuna og framkvæmdasvið borgarinnar hafa gengið vel. Þá þakkar hann sömuleiðs fjölmiðlum fyrir samstarfið í gær því mikilvægt hafi verið að koma skilaboðum til almennings. Hreinsunarstarf stendur nú yfir en ekki liggur fyrir hvenær því lýkur.Jón Viðar segir ekkert frekar vitað um eldsupptök en rannsókn á þeim sé flókin og geti tekið allt að þrjá daga. Talið er að eldurinn hafi komið upp í söluturni milli Austurstrætis 22 og Lækjargötu 2.Formlegri eldvakt slökkviliðsins lauk í morgun klukkan 7 og segir Jón Viðar að slökkviliðsmenn á vaktinni í nótt hafi farið um svæðið en ekkert óvenjulegt hafi komið upp. Þá segir hann aðspurður að engin vandamál hafi verið með vatn á staðnum.
Stórbruni við Lækjartorg Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Fleiri fréttir Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Sjá meira