Tónlist

Ekki springa!

Eins og Satan sjálfur Kristinn Sigmundsson á æfingu í Semperóperunni á dögunum.
Eins og Satan sjálfur Kristinn Sigmundsson á æfingu í Semperóperunni á dögunum. MYND/AP

Hinn geðþekki óperusöngvari Kristinn Sigmundsson æfir nú hlutverk Mefistós fyrir uppfærslu Semperóperunnar í Dresden í Þýskalandi á óperunni Fordæmingu Fásts eftir Hector Berlioz. Verkið byggir á sorgarleik Goethes um eitt þekktasta fall bókmenntasögunnar þar sem Kristinn leikur hinn illa en óumræðanlega heillandi Mefistó sem verður örlagavaldur Fásts.

Óperuhús þetta er með þeim frægustu í heimi og er iðulega uppselt á sýningar þar. Fyrirhyggjusamir Þýskalandsfarar geta hins vegar reynt á heppni sína á heimasíðunni www.semperoper.de.

Verkið verður frumsýnt á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×