Lífið

Tarantino með íslenskri snót á Tapas

Breki Logason skrifar
Quentin Tarantino var á Tapas í gærkvöldi.
Quentin Tarantino var á Tapas í gærkvöldi.

Hollywoodleikstjórinn Quentin Tarantino sem staddur er hér á landi skellti sér á Tapas barinn í gærkvöldi. Snæddi hann þar kvöldverð með ungri íslenskri snót.

Leikstjórinn var hinn hressasti en ekki er vitað hver var sú heppna er. Stúlkan sem er á aldrinum 25-30 ára virtist skemmta sér vel með Tarantino sem er mikill íslandsvinur. Fór vel á með þeim en þau fóru í svokallað óvissuferð á staðnum. Þar fengu þau marga litla smárétti og hafði Tarantino á orði að þetta væri einn besti matur sem hann hefði smakkað. Parið drakk síðan kokkteila það sem eftir lifði kvölds.

Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um hver sú heppna er, eru beðnir um að hafa samband við Vísi með því að senda tölvupóst á netfangið ritstjorn@visir.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.