Körfubolti

Snæfell lagði Keflavík

Hlynur Bæringsson skoraði 18 stig og hirti 10 fráköst fyrir Snæfell
Hlynur Bæringsson skoraði 18 stig og hirti 10 fráköst fyrir Snæfell

Snæfell lagði Keflavík 84-67 í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í Stykkishólmi í kvöld eftir að hafa verið yfir 43-36 í hálfleik. Heimamenn höfðu yfir lengst af í leiknum og segja má að sigur þeirra hafi verið nokkuð öruggur. Þeirra bíður engu að síður erfitt verkefni í Keflavík þegar liðin mætast öðru sinni um helgina, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn.

Hlynur Bæringsson var atkvæðamestur í jöfnu liði Snæfells með 18 stig og hirti 10 fráköst, Justin Shouse og Jón Jónsson skoruðu 16 hvor og Magni Hafsteinsson skoraði 15 stig.

Hjá Keflavík var Sebastian Hermenier stigahæstur með 14 stig og Magnús Gunnarsson skoraði 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×