Fomúlubíll í Smáralind 25. júní 2007 19:13 Það er mikið verk að setja saman formúlu 1 bílinn í Smáralind.
Formúlubíllinn sem Nico Rosberg ekur við Smáralind á morgun, þriðjudag, er kominn til Íslands og hefur verið settur upp í Vetrargarði Smáralindar. Í tilkynningu kemur fram að bílnum, sem vegur um 600 kg, fylgi 20 manna starfslið ásamt tæplega 8 tonnum af búnaði. Þetta er 2007 útgáfa Williams sem notuð er í tilraunaakstri Williams liðsins á brautum um allan heim. Það eru Baugur Group og Hagkaup sem standa að komu Rosberg og bílsins til landsins og í tilkynningu frá Baugi segir að starfsmenn Williams hafi unnið að samsetningu bílsins í Vetrargarðinum í dag og nýttu til þess fjöldann allan af verkfærum og risatölvu. „Eftir að hafa náð réttum vélarhita var bíllinn settur í gang rétt fyrir utan Vetrargarðinn og mátti heyra í bílnum langt að, en þetta var einungis forsmekkurinn af því sem koma skal." „Formúlu 1 dagurinn með Rosberg verður síðan á morgun, þriðjudag, og mun hann aka fjölda hringja við efra bílaplanið í Smáralind." Bílnum verður ýtt út úr Smáralind kl. 13:00 og mun Rosberg veita eiginhandaráritanir við bílinn kl.15:30. „Fyrsti sýningarakstur Rosberg hefst svo kl. 16.30. Eftir það gefst áhorfendum tækifæri til að skoða bílinn og fá eiginhandaráritun Rosberg en einnig mun hann tilkynna hvaða heppni viðskiptavinur Hagkaupa hlýtur ferð á Silverstone kappaksturinn þann 8.júlí nk. Seinni sýningaraksturinn verður kl. 18:00 og má gera ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl.18:30," segir að lokum.
Mest lesið Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veður „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Innlent Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira