Formúla 1

Kovalainen áfram á sjúkrahúsi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bifreið Heikki Kovalainen eftir áreksturinn um helgina.
Bifreið Heikki Kovalainen eftir áreksturinn um helgina. Nordic Photos / AFP
Heikki Kovalainen verður haldið á sjúkrahúsi í Barcelona í eina nótt til viðbótar á meðan að hann gengst undir rannsóknir vegna árekstursins í spænska kappakstrinum í gær.

Kovalainen ók á vegg á meira en 200 km/klst hraða og missti fyrst um sinn meðvitund. Hann gaf þó merki um að það væri í lagi með hann er hann var fluttur í burt á sjúkrabörum.

„Ég er ánægður með líðan hans miðað við þann árekstur sem hann lenti í. Honum gengur vel," sagði Aki Hintsa, læknir McLaren-liðsins.

Það hefur einnig verið greint frá því að hann varð ekki fyrir neinum alvarlegum höfuðáverkum. Forráðamenn McLaren eru vongóðir um að hann geti tekið þátt í tyrkneska kappakstrinum þann 11. maí næstkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×