

Formúla 1
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“
Fréttamaður sem hefur góð tengsl við Michael Schumacher og fjölskyldu hans segir að Þjóðverjinn geti ekki talað og sé algjörlega upp á aðstoðarfólk sitt kominn.
Fréttir í tímaröð

Ballið búið hjá Hamilton og Vergara
Svo virðist sem glóðin hafi slokknað hjá ökuþórnum Lewis Hamilton og leikkonunni Sofíu Vergara.

Red Bull búið að gefast upp á Lawson
Þrátt fyrir að aðeins tveimur keppnum sé lokið á tímabilinu í Formúlu 1 bendir allt til þess að Red Bull ætli að skipta öðrum ökumanni sínum út.

Lando Norris aðeins 0,8 sekúndum á undan heimsmeistaranum í markið
Lando Norris hjá McLaren vann fyrsta formúlu 1 keppni ársins í nótt en þá fór ástralski kappaksturinn fram í Melbourne.

„Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, segir að komandi tímabil verði stærsta áskorun liðsins til þessa.

McLaren með tvo fremstu menn á ráspól í fyrstu keppni ársins
McLaren menn ætla sér stóra hluta á nýju formúlu 1 tímabili og þeir stóðu undir þeim vonum og væntingum í tímatöku fyrir ástralska kappaksturinn sem fram fór í nótt.

„Kominn tími á konu í Formúlu 1“
Hin danska Alba Hurup Larsen ætlar sér að skrifa nýjan kafla í sögu Formúlu 1 enda hefur hún sett sér risamarkmið.

F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar
Tuttugu og fjórar keppnishelgar, tíu lið, tuttugu framúrskarandi ökumenn en aðeins einn þeirra stendur uppi sem heimsmeistari. Þetta er krúnudjásn akstursíþróttanna, Formúla 1.

Cadillac verður með lið í formúlu 1
Formúla 1 hefur staðfest að Cadillac verði ellefta liðið í heimsmeistarakeppni formúlu 1 frá og með 2026 tímabilinu.

Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen
Toto Wolff, liðsstjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, gaf sjöfalda heimsmeistaranum Lewis Hamilton loforð þess efnis að hann myndi ekki reyna að fá Max Verstappen til liðs við Mercedes frá Red Bull Racing á meðan að Bretinn væri ökumaður liðsins.

Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður
Lewis Hamilton er kominn til Ferrari og það er mikill áhugi meðal formúlu 1 áhugafólks á því að sjá hvernig honum gengur þar.

Sár Verstappen hótar sniðgöngu
Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen er allt annað en sáttur með móttökurnar sem hann fékk í O2 höllinni í Lundúnum á eins konar frumsýningarkvöldi mótaraðarinnar á dögunum. Baulað var hressilega á Hollendinginn er hann var kynntur til leiks á umræddu kvöldi.

Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu
Breski ökuþórinn Ollie Bearman missti svolítið út úr sér á blaðamannafundi fyrir formúlu 1 tímabilið.

Eiginkona Michael Schumacher í áfalli
Öryggisvörðurinn sem reyndi að fjárkúga fjölskyldu Michael Schumacher slapp allt of vel að mati þeirra. Dómi hans hefur nú verið áfrýjað.

Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“
Þrír menn hafa verið dæmdir í Þýskalandi fyrir að hafa reynt að kúga fé frá fjölskyldu Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher með því að hóta því að birta viðkvæmar upplýsingar úr sjúkraskrám hans sem og myndir af honum.

Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi
Lewis Hamilton, einn þekktasti og sigursælasti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gekk í raðir Ferrari fyrir komandi tímabil í F1. Hann vonar að fall sé fararheill eftir að klessa á þegar hann keyrði Ferrari-bíl sinn í fyrsta skipti.

Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins
Andrea Kimi Antonelli, sem tekur við af Lewis Hamilton hjá Mercedes, er kominn með bílpróf, sex vikum fyrir fyrstu keppni hans í Formúlu 1.

Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili
Ökumenn í formúlu 1 eiga það á hættu að fá harðari refsingar á komandi tímabili. Þeir þurfa að passa vel upp á framkomu sína og orðanotkun á opinberum vettvangi.

Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili
Lewis Hamilton, einn besti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gæti ekki verið spenntari fyrir nýju upphafi en á næsta keppnistímabili mun hann keppa fyrir hönd Ferrari.

Michael Schumacher verður afi
Dóttir formúlugoðsagnarinnar Michael Schumacher er að gera hann að afa í fyrsta sinn en hún tilkynnti á samfélagsmiðlum sínum að hún eigi von á barni.

Meistarinn með nýjan félaga eftir að Perez var sparkað
Nú er orðið ljóst hver mun aka fyrir Red Bull liðið ásamt heimsmeistaranum Max Verstappen, eftir að ákveðið var að reka Sergio Perez.

Harður diskur með viðkvæmum upplýsingum um Schumacher týndur
Í réttarhöldunum yfir mönnunum sem ætluðu að fjárkúga fjölskyldu Michaels Schumacher kom fram að harður diskur með viðkvæmum upplýsingum um ökuþórinn fyrrverandi sé týndur.

Fékk myndir sem áttu að sýna Schumacher við „slæma heilsu“
Réttarhöld yfir þremur karlmönnum, sem sakaðir eru um að hafa reynt að kúga fé af fjölskyldu þýsku Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher, hófust í Wuppertal í Þýskalandi í dag.

Norris vann og tryggði McLaren fyrsta titilinn í 26 ár
Lando Norris hrósaði sigri í Abú Dabí kappakstrinum, síðustu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Með sigrinum tryggði hann McLaren heimsmeistaratitil bílasmiða.