FIA gaf í dag út dagatal fyrir Formúlu 1 mótaröðina á næsta ári. Átjan mót verða á dagskrá og nýr mótsstaður í Abu Dhabi verður í lok ársins.
Mótshaldarar í Abu Dhabi hafa lagt mikla vinnu í götubraut og kemur til greina að hún verði að kvöldi til og flóðlýst. Tilkynnt verður um framkvæmd mótins eftir keppnina í Japan um næstu helgi. Þá er verið að reisa umfangsmikinn Ferrari skemmtigarð í nágrenni brautarinnar.
Tvö mót eru á Spáni á næsta ári, en keppni í Kanada er ekki á dagskrá að þessu sinni. Fyrsta mótið verður í Ástralíu 29. mars og er það mun seinna á dagskrá en síðustu ár.
Mótaskrá FIA 2009
Ástralía 29. Mars
Malasía 5. apríl
Bahrain 19. apríl
Spánn 10. maí
Mónakó 24. maí
Tyrkland 7. júní
Bretland 21. júní
Frakkland 28. júní
Þýskaland 12. júlí
Ungverjaland 26. júlí
Evrópa 23. ágúst
Belgía 30. ágúst
Ítalía 13. september
Singapúr 27. september
Japan 11. október
Kína 18. október
Brasilía 1. nóvember
Abu Dhabi 15. nóvember