Lífið

Íslensk verslun opnar í NY - myndir

Þórunn Anspach og Olivier Brémond eru eigendur Kisunnar.
Þórunn Anspach og Olivier Brémond eru eigendur Kisunnar.

Nýverið opnaði Kisan Concept store fyrstu verslun sína fyrir utan landsteinana. Verslunin er í New York, nánar tiltekið í hjarta Soho á 125 Green Street.

Samkvæmt fréttatilkynningu markar opnun Kisunnar nýtt upphaf sölu á kven- og barnafatnaði frá 66°NORÐUR á Manhattan og fleiri fyrirtækjum.

Verslunin Kisan í New York.
Nýlega var haldið opnunarteiti í versluninni í New York þar sem kven- og barnafatnaðurinn frá 66°NORÐUR vakti sérstaka athygli.  Þar er einnig seld öll Farmers market línan sem er alíslensk.

 

Kisan á Laugavegi var stofnuð árið 2005 af Þórunni Anspach og Olivier Brémond.

Með eigendum má einnig sjá Halldór G. Eyjólfsson forstjóra 66°NORÐUR og gesti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.