Erlent

Sá kærustuna deyja í baksýnisspeglinum

Óli Tynes skrifar

Ungur danskur maður hefur fengið áfallahjálp eftir að hann sá kærustu sína deyja í baksýnisspeglinum á bíl sínum í gær.

Parið var á ferð í tveim bílum á hringveginum í Holsterbro, að sögn danska blaðsins BT.

Maðurinn ók á undan og varð að víkja snöggt undan þegar bíll sem kom á móti fór yfir á rangan vegarhelming.

Í baksýnisspeglinum sá hann bílinn keyra beint framan á bíl kærustunnar, sem lést samstundis.

Ökumaður hins bílsins var fluttur á sjúkrahús en útskrifaður samdægurs. Lögreglan rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×