Viðskipti innlent

Vara við einhliða upptöku evru

Hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson við Seðlabanka New York og Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, vara við hugmyndum um einhliða upptöku evru. Þeir segja slíkt skref geta orsakað áhlaup á íslenska banka.

„Það verður aldrei bankaáhlaup á nýju íslensku ríkisbankanna því að það er til íslenskur seðlabanki. Ríkið getur alltaf prentað peninga og borgað fólki krónur. Vegna þess að allir vita þetta, trúir fólk viðskiptaráherra þegar hann segir að innistæður fólks á Íslandi séu tryggar," segir Gauti á bloggsíðu sinni. „Ef Ísland tekur einhliða upp evru er þetta ekki hægt. Ríkið getur ekki prentað evrur. Og Evrópski seðlabankinn hefur engan áhuga á að lána okkur ef allir vilja taka út evrurnar sínar úr bönkunum, því að þeir eru á móti einhliða upptöku evru."

Ásgeir Jónsson segir í grein í Markaðnum í dag, að lausn vandans felist því ekki í því að skipta myntinni út einhliða við núverandi aðstæður. „Flest bendir raunar til þess að það geti gert málin enn verri þar sem einhliða upptaka veldur því að peningaframboðið verður ytri stærð og veltur á lánaaðgengi ríkissjóðs á erlendri grund. Þannig stæðu íslensku bankarnir án lánveitenda til þrautarvara á innlendum markaði og gætu því hæglega lent í nýju bankaáhlaupi af hálfu innlendra sparifjáreigenda."

Ásgeir segir að landsmenn þurfi á krónunni að halda næstu misserin við endurreisn hagkerfisins og aðlögun að nýjum vaxtarferli sem hljóti að miðast við útflutning. „Við þessar aðstæður er fátt annað í stöðunni en að byggja upp nýtt traust á þjóðargjaldmiðlinum og fleyta honum á nýjan leik eins fljótt og unnt er," segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×