Pakistönsk kona sökuð um tengsl við al-Qaida 5. ágúst 2008 14:08 Aafia Siddiqui er grunuð um tengsl við al-Qaida.
Pakistönsk kona hefur verið flutt frá Afganistan til Bandaríkjanna þar sem hún á yfir höfði sér ákæru fyrir að reyna að myrða fulltrúa á vegum Bandaríkjastjórnar. Bandarísk yfirvöld segjast hafa handsamað konuna, Afiu Siddiqui, í júlí og saka hana um tengsl við al-Qaida hryðjuverkasamtökin. Segja þeir hana hafa verið í felum í fimm ár. Þegar menn á vegum hersins og alríkislögreglunnar vitjuðu Siddiqui þar sem hún var í haldi í Afganistan í júlí á henni að hafa tekist að ná byssu og hún reynt að drepa tvo fulltrúanna áður en hún var yfirbuguð. Siddiqui var um tíma nemandi í MIT-háskólanum í Bandaríkjunum og á þrjú börn. Hún er sögð hafa verið gift frænda Khalids Sheikh Mohammeds, sem sagður er hafa skipulagt árásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Fjölskylda Siddiqui og mannréttindahópar halda því hins vegar fram að bandarísk yfirvöld hafi ekki nýverið handtekið konuna heldur haldið henni fanginni í leynifangelsi í fimm ár. Á blaðamannafundi í Pakistan í dag sagði systir hennar að hún hefði sætt pyntingum í fangelsinu en hún hefði ekki gerst sek um nokkurn skapaðan hlut. Verði Siddiqui sakfelld fyrir að reyna að myrða fulltrúa Bandaríkjastjórnar gæti hún átt yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsisvist.
Mest lesið Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent Lýsa yfir hættustigi Innlent Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Innlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Innlent Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Innlent Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Innlent Sagði Harris vanhæfa sökum barnleysis Erlent Fleiri fréttir Netanyahu fékk standandi lófatak frá Bandaríkjaþingi Fjöldi mótmælir við sögulegt ávarp Netanjahú Frakklandsforseti blandar sér í mál hvalavinarins Musk segir fregnirnar af milljónunum 45 ósannar Heimshitamet slegið tvisvar á jafnmörgum dögum Hagnaður krúnunnar meira en tvöfaldast vegna vindorkusamninga Átján fórust í flugslysi í Nepal Kókaín finnst í lifrum og vöðvum hákarla í Brasilíu Sagði Harris vanhæfa sökum barnleysis Skákar Trump í skoðanakönnun Segir nýja stjórn ekki verða myndaða fyrr en eftir Ólympíuleikana Fulltrúar Fatah og Hamas undirrita viljayfirlýsingu í Peking Trump kvartar formlega vegna yfirtöku Harris á sjóðum Biden Microsoft kennir Evrópureglum um kerfisbilunina Ávarpar þjóðina á morgun Forstjóri lífvarðasveitarinnar segir af sér vegna banatilræðisins Bráðabirgðamælingar sýna heitasta dag jarðar frá upphafi mælinga Stjórnvöld í Kína hyggjast hækka eftirlaunaaldurinn Hver verður varaforsetaefni Kamölu Harris? Lögreglumaður skaut konu í höfuðið á heimili hennar Tvær aurskriður urðu minnst 157 að bana Segja neyðarástand ríkja vegna aukins ofbeldis gegn konum og stúlkum Réðst inn á hjúkrunarheimili móður sinnar og drap sex Hefur tryggt sér nógu marga kjörmenn til að hljóta útnefninguna Trump hafi „misst kúlið“ í kjölfar ákvörðunar Bidens Þekkir Kamölu Harris: „Ég held að hún eigi eftir að rassskella hann nokkrum sinnum“ Sánchez boðaður til að bera vitni í spillingarmáli eiginkonunnar Flest smit í fyrsta sinn utan Afríkuríkjanna sunnan Sahara Nærtækast og praktískast að Harris leiði baráttuna gegn Trump „Þetta þýðir að Kamala Harris verður frambjóðandi Demókrata“ Sjá meira