Farið þið hundrað sinnum til helvítis Óli Tynes skrifar 12. september 2008 15:51 Hugo Chavez forseti Venesúela.
Hugo Chavez forseti Venesúela hefur rekið bandaríska sendiherrann úr landi og gefið honum 72 klukkustundir til þess að hypja sig, eins og forsetinn orðaði það. Hann hótaði einnig að hætta olíusölu til Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hafa svarað í sömu mynt með því að reka sendiherra Venesúela úr landi. Chavez talaði enga tæpitungu fremur en venjulega, þegar hann tilkynnti þetta; „Skíta Ameríkanar. Farið þið hundrað sinnum til helvítis. Við erum hér, börn Bólivars, börn Guacaipuros, börn Tupacamarus, og við erum staðráðin í að vera frjáls. Ég lýsi allri ábyrgð á hendur bandaríkjamönnum á þessu og öllu öðru sem gerist. Þeir standa á bakvið öll samsæri gegn þjóð okkar." Venesúela er annað Suður-Ameríkuríkið sem rekur bandarískan sendiherra úr landi. Evo Morales forseti Bólivíu sakaði sendiherrann þar í landi um að espa til óeirða og rak hann heim síðastliðinn miðvikudag. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að Bandaríkin hörmuðu þetta. Þetta lýsi veikleika og örvæntingu þessara leiðtoga þegar þeir ættu í erfiðleikum heimafyrir.
Erlent Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Sjá meira