Fótbolti

Árni Gautur vill spilla bikardraumi gömlu liðsfélaganna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árni Gautur í búningi Vålerenga.
Árni Gautur í búningi Vålerenga. Mynd/Scanpix

Árni Gautur Arason mun í kvöld mæta sínum gömlu félögum í Vålerenga er hann mætir þeim með sínu núverandi liði, Odd Grenland, í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar.

Veigar Páll Gunnarsson, Pálmi Rafn Pálmason og félagar í Stabæk komust í gær í úrslit bikarkeppninnar og er því möguleiki á því að um Íslendingaslag verði að ræða í úrslitunum.

Árni Gautur hefur tvívegis áður tekið þátt í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar, í bæði skiptin með Rosenborg. Annar þeirra vannst en Árni Gautur sat á bekknum í báðum viðureignum.

„Það væri gaman að spila úrslitaleik þar sem ég byrja inn á og legg eitthvað fram," sagði Árni Gautur í samtali við Nettavisen í Noregi.

„Auðvitað er það svolítið sérstakt fyrir mig að mæta gömlu félögunum. En nú spila ég með Odd og ég ætla mér með því liði í bikarúrslitin. Svona getur fótboltinn verið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×