Tónlist

Frí smáskífa á netið

Upptökum á nýrri plötu Skakkamanage er lokið og smáskífa komin á netið.  .
Upptökum á nýrri plötu Skakkamanage er lokið og smáskífa komin á netið. . Fréttablaðið/Daníel R

Skakkamanage hefur ákveðið að breiða út boðskapinn og gefa smáskífu með tveimur lögum. Skífuna má nálgast á netinu.

„Við erum nýbúin að klára plötu og stefnum á að gefa hana út 1. október. Við ákváðum í tilefni af því að platan er tilbúin að taka tvö lög og setja á netið. Þannig að fólk fái forsmekkinn," segir Svavar Eysteinsson, liðsmaður sveitarinnar.

En af hverju að gefa skífuna? „Það er rosalega erfitt að átta sig á hvernig plötumarkaðurinn er, hann er eitthvað svo skrítinn um þessar mundir. Við lifum í stafrænum heimi. Við ákváðum því að í staðinn fyrir að fara út í það fyrirtæki að gefa út þessi tvö lög væri sniðugra að gera þetta svona. Svo er kreppa og enginn á pening. Þá vantar bara að meira af hlutum séu ókeypis," segir Svavar.

Smáskífan verður að duga aðdáendum í bili því einhver bið er á tónleikum með sveitinni. „Við erum svolítið hingað og þangað þessa stundina. En það verða örugglega tónleikar með haustinu. Svo verður partí og læti þegar platan kemur út."

Svavar vonar að uppátækinu verði vel tekið. „Við vonumst til þess að þetta kveiki gríðarlega eftirvæntingu og löngun eftir nýju plötunni og fólk komi sér saman um að kaupa hana." Smáskífuna má nálgast á skakkapopp.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.