Formúla 1

Valentino Rossi alsæll á Ferrari

Valentio Rossi skoðar Ferrari fákinn með aðtoðarmönnum sínum.
Valentio Rossi skoðar Ferrari fákinn með aðtoðarmönnum sínum. mynd: kappakstur.is

Ítalski mótorhjólameistarinn Valentio Rossi ekur Ferrari Formúlu 1 bíl í dag á Mugello brautinni á Ítalíu. Hann fór sprett á bílnum í gær líka.

"Ég get ekki beðið eftir að keyra bílinn, sem er án spólvarnar og því mun reyna meira á mig en síðast. Síðast þegar ég keyrði þá varð ég 1.2 sekúndum á eftir Michael Schumacher í hring á Mugello brautinni. Kannski get ég gert enn betur núna", sagði Rossi.

"Það er mjög sérstakt að keyra Formúlu 1 bíl og ólíkt því að stýra mótorhjóli á kappakstursbraut. Maður þarf að vera mjög nákvæmur á Formúlu 1 bíl til að geta ekið á ystu nöf. Þegar maður kemst þangað, þá er alsæla…."

"Mótorhjólaakstur reynir meira á líkamlega beitingu og í rallinu þarf grófari akstursstíl", sagði Rossi. Hann keppir í heimsmeistaramótinu í rallakstri í lok mánaðarins á Ford Focus.

Rossi er með samning í mótorhjólakappakstri til loka ársins 2010, en segist vel geta hugsað sér að snúa sér að akstri á fjórum hjólum eftir það. Helst rallakstri, en trúlega sé of seint að hefja þátttöku í Formúlu 1, en Rossi er 31 árs gamall.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×