Í ljós er komið að breskir háskólar og sjúkrahús í Bretlandi hafa tapað stórt á falli íslensku bankanna. Þar á meðal er sjúkrahúsið Christie Hospital í Manchester sem sérhæfir sig í lækningum á krabbameini.
Samkvæmt frétt um málið í The Times segir að a.m.k. tíu háskólar hafi brunnið inni með sjóði sína í íslensku bönkunum og séu það upphæðir sem nemi tugum milljóna punda eða margir milljarðar kr.
Hvað Christie Hospital varðar mun annar af sjóðunum tveimur sem útvega sjúkrahúsinu rekstrarfé hafa átt 2 milljónir punda eða nær 400 milljónir kr.
Þá hafa nokkrar góðgerðarstofnanir sagt að þær hafi átt 125 milljónir punda í íslensku bönkunum áður en þeir féllu.