Íslenski boltinn

Hamburg bauð Jóhanni ekki samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Breiðabliki í sumar.
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Breiðabliki í sumar. Mynd/Anton

Þeir Jóhann Berg Guðmundsson og Finnur Orri Margeirsson eru nú farnir frá Hamburg eftir að hafa æft með þýska úrvalsdeildarfélaginu HSV undanfarna daga.

Konstantin Krüger, talsmaður félagsins, að ákveðið hafi verið að bjóða þeim ekki samning að svo stöddu.

„Þeir æfðu með okkur og skoðuð aðstæður," sagði Krüger í samtali við Vísi. „En þeim hefur ekki verið boðinn samningur að svo stöddu. Félagið mun samt fylgjast áfram með þeim og óráðið hvað gerist í framtíðinni."

Fleiri félög hafa sýnt Jóhanni Berg áhuga en Vísir hefur ekki náð tali af honum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×