Tónlist

Hlíf í Friðriksborg

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari. 
Mynd Eddi
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari. Mynd Eddi

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari heldur tónleika á morgun í hallarkirkjunni í Friðriksborgarhöll á Sjálandi. Þar leikur hún í tilefni af sýningu á portrettmyndum föður síns, Sigurjóns Ólafssonar, sem stendur þar yfir og lýkur um áramót. Á efnisskránni eru Partíta nr. 2 í d-moll eftir Bach og Vetrartré fyrir einleiksfiðlu, sem Jónas Tómasson skrifaði fyrir Hlíf og tileinkaði henni.

Svo skemmtilega vill til að langafi Hlífar var prestur í kirkjunni á sínum tíma. Hlíf stendur í ströngu þessa dagana. Hún er nýbúin að gefa út disk með sónötum og partítum eftir Bach fyrir einleiksfiðlu sem hún hljóðritaði í Reykholtskirkju fyrr á þessu ári, en sónöturnar og partíturnar, þrjár í hvorri deild, þykja með mest krefjandi verkum sem samin hafa verið fyrir einleiksfiðlu og eru því vel þekktar í túlkun marga helstu meistara fiðlunnar. Er diskurinn kominn í dreifingu.

Eftir dvöl í Danmörku við tónleikahald og kennslu vindur Hlíf sér til Rómar en þar verður hún með tónleika þann 19. desember í tónleikaröð Sant’Agnese in Agone ásamt Sebastiano Brusco píanóleikara. Á efnisskrá eru Sónata nr. 1 í g-moll fyrir einleiksfiðlu eftir Bach, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Cesar Frank og Vetrartré Jónasar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.