Körfubolti

Erfitt að vera 8-0 eftir sex leiki

Benedikt Guðmundsson
Benedikt Guðmundsson Mynd/Stefán

KR-liðið hefur verið á mikilli siglingu í Iceland Express deild karla í körfubolta í vetur og hefur unnið fyrstu sex leiki sína í deildinni.

KR-ingum hefur verið ætlað að gera stóra hluti í vetur eftir að það fékk landsliðsmennina Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson í sínar raðir og ekki er óalgengt að heyra menn kasta því fram að það yrði stórslys ef KR yrði ekki Íslandsmeistari - ekki síst í ljósi þess að efnahagskreppan hefur enn ekki haft jafn mikil áhrif á liðið og önnur í deildinni.

Vísir hafði samband við Benedikt Guðmundsson þjálfara KR og spurði hann út í væntingar hans sjálfs og fólksins á götunni í vetur.

"Ég ætlaði liðinu auðvitað að vera 6-0 eftir sex umferðir, svo ég er auðvitað ánægður með það - en ég held að sé ekki hægt að vera 8-0 eftir sex leiki," sagði Benedikt í gamansömum tón og vísaði í þær væntingar sem gerðar eru til KR í vetur.

"Ég hef gengið út eftir tvo leiki vetur þar sem maður upplifði að maður hefði verið að tapa þar sem sigrarnir voru bara með ellefu og fimmtán stigum, svo það er kannski dæmi um þessar væntingar sem til okkar eru gerðar. Það er eins og við höfum öllu að tapa ekkert að vinna," sagði Benedikt.

En er þá ekki bara leiðinlegt að spila undir þeim formerkjum?

"Það var mjög skrítin tilfinning að upplifa að það væri ekki nóg að vinna. Ég skal alveg viðurkenna að við höfum ekkert endilega verið frábærir í öllum leikjunum en það er líka ekki hægt að ætlast til þess að menn sýni alltaf sinn besta leik. Það getur líka verið að sé erfiðara að koma mönnum á tærnar fyrir suma leiki," sagði Benedikt.

Næsti leikur KR-inga verður á fimmtudagskvöldið klukkan 19:15 en þá sækja þeir Stjörnuna heim í Ásgarðinn í Garðabæ. Þá tekur FSu á móti Breiðablik og grannarnir Grindavík og Keflavík mætast í Grindavík.

KR er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex umferðir, Grindavík kemur næst með 10 stig og Keflavík og Tindastóll hafa 8 stig í þriðja og fjórða sætinu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×