Körfubolti

Náðum aldrei að koma tuðrunni inn í teig

Hlynur tók sig vel út í búningi Blika í kvöld eftir að Snæfellingar gleymdu búningum sínum heima.
Hlynur tók sig vel út í búningi Blika í kvöld eftir að Snæfellingar gleymdu búningum sínum heima. Mynd/Valli

"Við vorum alveg arfaslakir á löngum köflum í seinni hálfleik og við verðum að fara að koma einhverju flæði í þennan sóknarleik okkar," sagði Hlynur Bæringsson, spilandi þjálfari Snæfells í samtali við Vísi eftir nauman sigur hans manna á Breiðablik í kvöld.

Lið Snæfells náði heilt yfir ekki að nýta sér þann mikla hæðarmun sem var á liðunum og var sóknarleikur liðsins á köflum frekar ryðgaður þó baráttan væri í fínu lagi að venju.

"Við náðum aldrei að koma tuðrunni inn í teig og þegar þristarnir hættu að detta hjá okkur vorum við bara í tómu rugli," sagði Hlynur móður eftir átökin.

Við spurðum hann hvernig honum hefði liðið þegar skot Nemanja Sovic var að dansa á hringnum þegar leiktíminn í venjulegum leiktíma var að renna út og staðan var jöfn 67-67.

"Pumpan bara stoppaði á meðan, en hann komst upp með að taka NBA skref áður en hann tók skotið," sagði Hlynur í léttum dúr. Hann skoraði 11 stig, hirti 14 fráköst og varði 5 skot í leiknum.

Svo fór að lokum að Snæfellingar höfðu sigur 79-74 og var Hlynur ánægður með sigurinn þó liðið hafi ekki spilað eins vel og hann hefði óskað.

"Það var ekkert gefið að koma hingað og vinna þetta lið því þeir voru með fleiri sigra en við. Þeir spila fína svæðisvörn og eru vel þjálfaðir af Einari Árna. Ekki kannski eins vel þjálfaðir og liðið okkar, en vel þjálfaðir," sagði Hlynur glottandi, en hann er settur þjálfari Snæfells eins og flestir vita.

"Ég var bara kominn með krampa þarna síðustu þrjár mínúturnar og er í engu formi, það verður bara að viðurkennast - enda æfi ég ekki neitt. Maður blæs bara eins og hvalur eftir smá tíma. Ég verð að vera í almennilegu formi til að geta spilað minn eðlilega leik," sagði Hlynur og sagðist ekki reikna með að komast í almennilegt stand fyrr um áramót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×