Golf

Tvöfaldur sigur hjá Keili

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hlynur Geir Hjartarson og Ásta Birna Magnúsdóttir, bæði úr Keili, urðu í dag Íslandsmeistarar í holukeppni. Leikið var á Korpúlfsstaðavelli.

Hlynur vann Ottó Sigurðsson úr GR í úrslitum 3/2. Sigmundur Einar Másson úr GKG hafnaði þriðja sæti. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Hlyns Geirs, en Ottó hefur tvisvar unnið titilinn.

Ásta vann Ragnhildi Sigurðardóttur úr GR í úrslitaleik 2/0 þar sem úrslitin réðust á 18. holu. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásta Birna fagnar Íslandsmeistaratitlinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×