Erlent

Prinsinn klárar flugskóla

Óli Tynes skrifar
William og fjölskylda.
William og fjölskylda.

Vilhjálmur bretaprins lauk í dag prófi frá konunglega breska flughernum. Meðal viðstaddra við útskriftinni voru faðir hans Charles erfðaprins og eiginkona hans Camilla hertogaynja af Cornwall.

Þótt breskum fjölmiðlum hafi löngum verið í nöp við hertogaynjuna virðist samband hennar við syni eiginmanns síns vera ágætt. Margar myndir hafa birst af þeim með henni, þar sem þau eru brosandi eða hlæjandi og una sér greinilega vel saman.

Camilla er einnig í miklum betum hjá Elísabetu drottningu og eiginmanni hennar, Filipusi prinsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×