Golf

Heiðar með aðra höndina á bikarnum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Víkurfréttir
Mynd/Víkurfréttir

Heiðar Davíð Bragason úr GR er með fimm högga forskot fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik. Hann lék á 2 undir pari í dag og er samtals á 6 höggum undir pari.

Heiðar hefur sýnt mikið öryggi í leik sínum. Björgvin Sigurbergsson úr GK er fimm höggum á eftir, er einu höggi undir pari í öðru sætinu.

Fjögur högg eru í næsta mann sem er Sigmundur Einar Másson úr GKG, sem lék hringinn í dag á 73 höggum.


Tengdar fréttir

Nína Björk með eins höggs forystu

Nína Björk Geirsdóttir úr GKj hefur eins höggs forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem stendur yfir í Vestmannaeyjum. Helena Árnadóttir úr GR er í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×