Körfubolti

Nate Brown aftur í Snæfell

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nate Brown í leik með ÍR.
Nate Brown í leik með ÍR.

Nate Brown er genginn í raðir Snæfells á ný og mun leika í stöðu leikstjórnanda í stað Justin Shouse.

Nate Brown hefur undanfarin tvö tímabil leikið með ÍR en hann lék með Snæfelli tímabilið 2005-2006 og var þá með 19,7 stig að meðaltali í leik og 6,7 stoðsendingar.

Stykkishólmspósturinn greindi frá þessu á vefsíðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×