Á hassknúnum flótta 18. september 2008 07:00 Seth Rogen og James Franco í hlutverkum sínum í Pineapple Express.
Grínmyndin Pineapple Express verður tekin til sýninga í kvikmyndahúsum hérlendis nú um helgina, en einn framleiðenda myndarinnar er enginn annar en Judd Apatow, maðurinn á bak við myndir á borð við Knocked Up og Superbad. Pinapple Express skartar þeim Seth Rogen, sem var einmitt í burðarhlutverki í Knocked Up, og James Franco, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í myndunum um Kóngulóarmanninn, í aðalhlutverkum. Rogen leikur letingjann og hasshausinn Dale sem verður fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að verða vitni að morði. Hann leitar skelfingu lostinn ásjár hjá eiturlyfjasalanum sínum Saul, sem Franco leikur af sannfærandi deyfð, en morðingjarnir fylgja fast á hæla hans. Þeir félagar Dale og Saul eiga því fótum sínum fjör að launa þar sem þeir skjótast af einum felustað á annan og lenda í ýmsum hrakningum í baráttu sinni við að halda lífi. Hasshausagrínmyndir hafa fyrir margt löngu skipað sér fastan sess innan Hollywood-iðnaðarins. Skemmst er að minnast myndanna um Harold og Kumar sem notið hafa nokkurra vinsælda undanfarið; Cheech og Chong slógu í gegn með hasshausagríni sínu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar og Coen-bræður gerðu heimssýn afdankaðra dagreykingamanna góð skil með tímamótaverkinu The Big Lebowski fyrir sléttum tíu árum. Pineapple Express sker sig þó nokkuð úr þessum hópi; vissulega er hún í grunninn grínmynd sem gerir að mestu út á þá einfeldni og vænisýki sem oft vill fylgja ótæpilegri neyslu kannabisefna, en hún er einnig talsvert ofbeldisfyllri en flestar slíkar myndir hafa hingað til verið. Líkast til má kenna leikstjóranum um, en hann heitir David Gordon Green og hefur fram að þessu einvörðungu leikstýrt ódýrum listrænum og dramatískum myndum. Hann hefur þó viðurkennt að hafa sérlegt dálæti á hasarmyndum níunda áratugarins, svo sem Tango & Cash, Surf Nazis must die og Death Wish 3. Af erlendum dómum um Pineapple Express að dæma má telja ljóst að áhrifa ofangreindra mynda gætir þar svo um munar. Bílaeltingaleikir, sprengingar og ítrekuð og blóðug slagsmál eru á meðal þess sem skreytir myndina inn á milli brandaranna. Ljóst er að myndin er vel til þess fallin að skemmta fullorðnu og vitibornu fólki, en vert er að benda á að þrátt fyrir að hún skarti gamanmyndastimplinum er hún þó bönnuð innan 16 ára. vigdis@frettabladid.is
Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Fleiri fréttir Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira