Viðskipti erlent

BHP hækkar tilboðið í Rio Tinto

Marius Kloppers, forstjóri BHP Billiton.
Marius Kloppers, forstjóri BHP Billiton. Mynd/AFP

Ástralska námafélagið BHP Billiton hefur hækkað óvinveitt yfirtökutilboð sitt í ál- og námurisann Rio Tinto. Helsta ástæðan fyrir bættu tilboði er gagntilboð frá Chinalco, stærsta álfélagi Kína, sem er í ríkiseigu, í Rio Tinto. Gengi hlutabréfa í BHP féll um fimm prósent í kjölfarið.

Tilboð BHP hækkaði um þrettán prósent og hljóðar upp á 147,4 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 9.552 milljarða íslenskra króna. Allt kaupverð verður greitt með hlutabréfum og fá hluthafar Rio Tinto 3,4 bréf í BHP fyrir hvert eitt bréf sitt. Fjármálasérfræðingar segja í samtali við Bloomberg-fréttaveituna að hækkunin sé BHP nauðsynleg ætli félagið að tryggja sér Rio Tinto. Það geti hins vegar orðið félaginu þungur baggi enda ljóst að greitt verði yfirverð fyrir það.

Gengi hlutabréfanna í BHP féll við þetta um heil fimm prósent í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi en viðlíka fall hefur ekki sést í 20 ár. Inn í spilar að félagið skilaði minni hagnaði í fyrra en árið á undan en það er afleiðing af lágum dollar gagnvart helstu gjaldmiðlum, hærri rekstrarkostnaði og verðlækkunar á málmum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×