Tónlist

Skráning að hefjast á Músíktilraunir

Undirbúningur fyrir Músíktilraunir 2008 er að hefjast. Keppnina þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en vandfundinn er sá íslenski tónlistamaður sem ekki hefur komið nálægt henni á einn eða annan hátt.

Keppnin hóf  göngu sína árið 1982 með sigri hljómsveitarinnar Dron. Síðan þá hefur hún verið útungunarstöð fyrir margar vinsælustu sveitir landsins, á borð við Mínus, Sigur Rós (sem þá hét Bee Spiders), Maus, Kolrössu (síðar Bellatrix), Botnleðja (síðar Silt), XXX Rottweiler, Mammút, Jakobínarína, 200.000 naglbítar og margir fleiri.

Skráning hefst 11. febrúar og stendur til 25. febrúar á heimasíðu keppninnar.

50 hljómsveitir komast í undankeppnina sem fer fram dagana 10.-14. mars í Austurbæ. Tvær hljómsveitir komast áfram á hverju undanúrslitakvöldi, og keppa þær til úrslita í Hafnarhúsinu þann 15. mars. Þeirri keppni verður útvarpað beint á Rás 2. Ríkissjónvarpið framleiðir einnig sjónvarpsþátt um keppnina sem verður sýndur í vor.  

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigursveitina, inneignir í hljóðfæraverslunum, stúdíótímar og ferð á tónlistahátíð sem tilkynnt verður innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.