Sprettur á bandarískum hlutabréfamarkaði 16. apríl 2008 20:53
Gengi hlutabréfa tók almennt sprettinn á bandarískum fjármálamarkaði í dag. Stærsta þátt í hækkuninni eiga uppgjör bandaríska fjárfestingarbankans JP Morgan, gosdrykkjaframleiðandans Coke Cola og íhlutaframleiðandans Intel, fyrir fyrsta fjórðung ársins. Öll voru þau yfir væntingum. Tíðindin í uppgjörunum gerðu fjárfesta vestanhafs vongóða um að versta hríðin á fjármálamörkuðum sé yfirstaðin. Á sama tíma rauk verð á hráolíu í rúma 115 dali á tunnu og hefur verðið á svarta gullinu aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir verðhækkuninni er sú að olíubirgðir í Bandaríkjunum drógust saman á milli vikna, að því er fram kemur í vikulegri skýrslu bandaríska orkumálaráðuneytisins. Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um rétt rúm tvö prósent en Nasdaq-vísitalan rauk upp um 2,8 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Viðskipti innlent „Græni punkturinn“ allt að helmingi dýrari en í Bónus og Prís Neytendur Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Viðskipti innlent Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Viðskipti innlent Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Viðskipti innlent Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Viðskipti innlent „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ Atvinnulíf Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Viðskipti innlent Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira