Körfubolti

Magnús: Get varla beðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Magnús Þór Gunnarsson í leik með Keflavík.
Magnús Þór Gunnarsson í leik með Keflavík. Víkurfréttir/Jón Björn

Magnús Þór Gunnarsson vonast eftir troðfullu húsi áhorfenda í kvöld þegar hans menn í Keflavík taka á móti ÍR í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla.

ÍR byrjaði á því að vinna fyrstu tvo leikina í einvíginu heldur óvænt en Keflavík, sem eru deildarmeistarar, svöruðu með tveimur sigurleikjum í röð. Það er því komið að oddaleiknum í kvöld.

„Stemningin er góð og ég get varla beðið,“ sagði Magnús í samtali við Vísi í dag. „Þetta verður örugglega jafn og spennandi leikur þar sem bæði lið eiga eftir að mæta grimm til leiks. Það vill enginn fara í sumarfrí í kvöld.“

Hann segir að Keflvíkingar muni ekki verða of sigurvissir þrátt fyrir tvo sigurleiki í röð.

„Nei, alls ekki. Við munum vel eftir fyrstu tveimur leikjunum. Það sem við þurfum að gera er að mæta af krafti í þennan leik. Við þurfum ekkert að hugsa um andstæðinginn, heldur bara einbeita okkur að okkar leik.“

Hann segir að sterk áhersla verði að stoppa ÍR-ingana Nate Brown og Hreggvið Magnússon. „Ef það tekst þá vinnum við leikinn. Við þurfum að láta þá vera með lélega skotnýtingu og þurfum auðvitað að hitta vel sjálfir.“

„En það er alltaf sagt að vörnin vinni titla. Það er því aðalmálið að spila góða vörn og vera samtaka í okkar varnarleik.“

Hann efast þó ekki um að ÍR-ingar séu búnir að undirbúa sig vel fyrir leikinn og að þeir hafi skoðað vel hvað fór úrskeðis hjá þeim í síðustu leikjum.

„En ég held að þeir ráði ekki við varnarleikinn okkar. Ef við spilum góða vörn þá skiptir ekki máli hversu gott hitt liðið er í sínum sóknarleik.“

Magnús býst þó sem fyrr segir við spennandi viðureign enda munu bæði lið gefa allt sitt í leikinn. „Það eru forréttindi fyrir þessi tvö lið að fá að spila oddaleik sem þennan því það eru ekki allir sem fá að taka þátt í þessu. Ég vona því að húsið verði troðfullt í kvöld og yfir þúsund manns á leiknum eins og var alltaf í gamla daga.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×